Rétt er að vekja athygli á myndlistarsýningu í anddyri Grensáskirkju sem lýkur 13. september næstkomandi og ber yfirskriftina Eftirfylgd.

Það er Sólveig Katrín Jónsdóttir (f. 1975) sem sýnir verk sín í kirkjunni. Hún hefur lokið meistaranámi í djáknafræðum frá Háskóla Íslands og er jafnframt listmeðferðarfræðingur og kennari. Langflest verkanna eiga sér sterkar trúarlegar skírskotanir og undir myndum hennar er vitnað til ákveðinna ritningarstaða.

Myndirnar eru flestar í sterkum og ljóðrænum litum sem ákveðin dulúð svífur yfir. Ákveðin táknhyggja býr að baki myndunum sem er undirstrikuð með tilvitnunum í Biblíuna. Þær eru nostursamlega gerðar og tilfinningaríkar.

Nú er það áhorfenda að vega og meta myndirnar og segja sitt álit.

Hér má sjá nokkrar myndanna

Þessi mynd heitir Endurlausnin

Vegurinn heitir þessi mynd og ritningartexti við hana er: Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig (Jóhannesarguðspjall 14.6)

Lífsins vatn er heiti þessarar myndar og ritningarstaðurinn sem fylgir henni er: Frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi vatns, eins og ritningin segir (Jóhannesarguðspjall 7.38)

Vatnið og hellirinn heitir þessi mynd með stefi sköpunarinnar og með henni fylgir þetta vers: Því að hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós (Sálmur 36.10)

Dýrðarlíkami er heiti þessarar myndar: En allir vér, sem með óhjúpuðu andliti endurspeglum dýrð Drottins, ummyndumst til hinnar sömu myndar, frá dýrð til dýrðar. Þetta gjörir andi Drottins (2. Korintubréf 3.18)

Þessi mynd heitir Til fjallanna og vísar til: Ég hef augu mín til fjallanna. Hvaðan kemur mér hjálp? Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar (Sálmur 121.1-2)

Kirkjublaðið.is hvetur öll þau sem tök hafa á að skoða þessa athyglisverðu sýningu. Það er alltaf fagnaðarefni þegar fólk tekur sig til og gerir myndir sem rætur eiga í trú og bæn.

Viltu deila þessari grein með fleirum?